06.05.2008 07:35:44 / Ebba
Jæja first thing first..
Mér gekk glimrandi vel í prófunum þrátt fyrir að tæknin hreinlega crassið hjá mér í einu prófi.. En ég bara reddaði mér eins og maður þarf nú oft að gera..
Veðrið í Danmörku er að verða svo frábært að sumarið lofar mjög góðu hér úti.
Ég er reyndar núna í Feneyjum að njótta lífsins í nokkra daga með kallinum mínum og bara slappa af og svo verður allt tekið með trukki þegar ég kem heim aftur
»
31.03.2008 13:59:42 / Ebba
Jæja í seinustu færslu hélt ég því fram að það væri að koma sumar hér í Danmerku, en svo var ekki ...nei nei nei.. Það er búið að vera svo kalt hérna að það er eins gott að klæða sig í ullarfötin inni því annars verður maður bara veikur .. mér reyndar tókst að vera veik ég var semsagt hnerrandi alla helgina og með hita og beinverki, ekki það besta en svona er þetta bara um leið og prófin nálgast þá bara fer allt í rugl

Já hún litla Zoey Bjössa og Bínu dóttir var hér hjá okkur um páskana og guð minn góður hvað þetta er yndislegur hundur. Hún er ekki bara sætust heldur líka svo skemmtileg. Kobbi var reyndar ekkert að meika að hafa hana hérna var eiginlega bara inni í herbergi hjá mér allan tíman hehe í fýlu hahahaha hann er svo mikil dekurrófa alveg merkilega spes hundur. En þau reyndar reyndu að leika sér smá en af því að hún er enþá svo mikið baby þá var hún ekki að geta leikið við hann almennilega og þá bara var hann ekki að nenna henni

Eins og ég sagði hann er spes...
En hún Zoey var ekki lengi að venjast okkur hér og áður en við vissum af var hún farin að biðja um að fara út á svalir til að pissa og slysin voru ekki mörg hjá henni.
En það var æðislegt að hafa hana og getað gert vinum okkar greiða

En já núna eru það næstu sett af prófum ég fer í tölfræði og erfðarfræði próf núna 10 og 12 apríl .. en svo kemur ltla systir mín í heimsókn 14 apríl þannig hvernig sem fer þá get ég alltaf huggað mig við það að litla krúttið mitt er að koma í heimsókn..
»
13.03.2008 22:38:39 / Ebba
Jæja það er nú langt síðan síðast... enda hef ég varla tíma til að gera annað þessa dagana en að læra vera í ræktinni og hugsa um heimilið og bara vera til. Við stelpurnar vorum að kaupa okkur kort í ræktinni þar sem við bara vorum alveg komnar í mínus form, en núna hefur maður ákkúrat engan tíma til að gera annað en það sem þarf og á að gera.. dagarnir sem maður lá uppi í sófa og horfi á friends eru búnir .. núna er það bara vinna og skipulag enda hentar það mjög fínt og ég hef aldrei lært betur og meir.
Það sem er helst að gerast hjá okkur núna er það að við erum að fara að passa stóra dana hvolp í rúma viku núna yfir páskana fyrir vinafólk okkar og hlakkar okkur mikið til að gera það, hvolpurinn er ekki nema 2 mán þannig að þetta verður mikið stuð... skemmtilegast verður að sjá hvernig Kobbi minn tekur henni
Sumarið er svo sannarlega að koma hér í Köben og það er alveg æðislegt að vera hérna núna,, ég er allanvegna ekki eins ósátt við landið lengur.... látum þetta duga í bili ...
»
03.02.2008 21:52:19 / Ebba
Loksins er þetta búið vá ég hélt að þetta tæki aldrei enda. Og veistu mér gekk bara vel já ég get allanvegna sagt að ég hafi gert mitt besta svo er bara að bíða og sjá.
Núna er að byrja ný blok og bókakaupin búin þessi blok var sko ekki ódýr, reyndar nota ég mjög mikið af þessum bókum áfram á 4 og 5 blok þannig að ég er mjög vel sett í bili. Komst að því að það er langbest fyrir mig og ódýrast að versla bækurnar mínar í gegnum amazon.co.uk ég held að það hafi munað helming að kaupa þær þar og ég fæ þær sendar heim. Mjög góður díll
Þessi blok legst mjög vel í mig eftir cellubiology þá er allt einhvern veginn auðveldara því að sá áfangi var svo heavy og hratt farið yfir allt að núna er maður kominn í gírinn og þetta er loksins farið að ganga hjá mér, mer finnst gaman í skólanum. Við erum líka að fara að byrja að skera í anatomi .. það verður æðislegt ég elska allt svona verklegt. Þannig finnst mér allanvegna best að læra.
Þannig að 2008 byrjar vel hja mér.
»
26.01.2008 08:06:51 / Ebba
Jæja Cellubiology loksins búið... nú er bara að bíð eftir einkunn..
Je minn mér gekk svona þokkalega ég bara vil ekki gera mér neinar vonir eða neitt fyrr en ég er búin að fá einkunn. Þetta er svona Killer áfangi ég veit um nokkra sem voru að taka prófið í 3ja sinn núna með okkur þannig að ég bara bíð spennt.
Núna er það samt næsta mál á dagskrá... Það er efnafræði prófið sem ég er að fara í núna eftir 4 klst ég er búin að sofa í svona 3 tíma í nótt og er alveg út að aka þreytt en ég verð bara að halda þetta út og svo ma ég sofa .. Ahhhh ég má sofa í kvöld.. Ég er svona frekar bjartsýn á þetta efnafræði próf held að ef ég bara slappa af þá komi þetta bara, allanvegna er ég búin að fylla kollinn á mér af endalausum formúlum enda dreymdi mig ekki annað í þessa 3 tíma en N að tengjast í C og O og svo titrun og ekki gleyma blessuðum peptíðunum

Svo er það biofysik á fimmtudag svo er ég búin í bili...
Svo 6 feb fer eg til noregs í helgarferð þar hitti ég pabba og Möggu og ég fæ að slappa af og fara á skíði það verður sweet....
»
17.01.2008 17:33:13 / Ebba
Þá er ballið að fara að byrja. Prófið í cellubiology er eftir 6 daga og ég er bara að læra á milljón fyrir það sérstaklega eftir að fallprósentan hækkaði um 15% á seinasta ári þannig að ég verð að standa mig og ég voa það svo innilega að þetta gangi upp hjá mér..
Ég flutti hann Kobba minn út með mér núna um jólin þannig að núna er ég búin að fá hundinnminn út og líkamsræktina og ég finn þvílikan mun að hafa hann það er bara best.
Alveg merkilegt hvað ég á samt góða ketti Kobbi er búin að vera herna í rúmar 2 vikur og kettirnir eru bara farnir að leika við hann og lúlla og kúra hjá honm ekkert vandamál.
Vildi bara aðeins látta heyra í mér það kemur svo góð færsla hérna þegar ég er búin í prófum
»
09.12.2007 20:35:02 / Ebba
Jæja
Nú er sko stutt í að ég komi heim jei jei jei. Í gær hittumstum við íslendingarnir og bökuðum og gerðum jolakonfekt, það var alveg æðislegt það var hlustað á tónlist.is og horft á næturaktina sem eru btw snilldar þættir. Núna eru rúmlega 1 og hálfur mánuður í profin okkar og maður er starx byrjaður að læra eins og brálæðingur. Enn núna því það er svo stutt í að maður komi heim þá bara næ ég ekki að einbeitta mér að neinu, frumlíffræðin sem ég á að vera að lesa núna er bara ekki að gera sig ég bara get ekki hætt að hugsa um allt það sem ég ætla mér að gera þegar ég kem heim. Fyrst af öllu mun ég knúsa fjölskylduna mína í spað og hann Kobba minn ég mun sko fara með hann í góðan göngutúr þar sem ég mun leika við hann og knúsa hann í tætlur. OOhhhh svo er það pulsa með öllu GUÐ MINN GÓÐUR!!!! malt og appelsín og svo bara mun ég fara út og tala íslensku. Eg mun samt sakna Olla og Míu þau eru nú alveg æði, talandi um þau hann Olli minn er núna þessa stundina með skerm utan um hausinn svo að hann geti ekki sleikt á sér typpið af því að hann var búin að vera svo ofur þriflegur þarna niðri og náði að sleikja á sig frekar stort sár þannig að ég hafði samband við dýralækni og hún sagði mér að skella á hann skerm og fylgjast með honum. Hann er orðinn miklu betri og sárið nánast horfið ég vona bara að hann taki ekki upp á því að gera sig svona fínan á meðan ég er heima.

Hann er svo mikið krútt algjört æði. Karlmenn hehe ..
»
03.12.2007 14:59:00 / Ebba
Hæ hæ hæ
Ég var að ákveða að byrja að safna póstkortum frá allskonar söfnum allsstaðar að úr heiminum og þá er ég líka að tala um frá Íslandi. Ég mun svo hengja þau upp í herberginu mína og gera herbergið mitt meira svona homie....
Ef þú átt leið inn á safn og sér skemmtilegt kort endilega sendu mér það

heimilisfangið er Clara pontoppidansvej 8 st tv 2500 Valby ... takk takk takk
»
26.11.2007 15:45:35 / Ebba
Vá ég veit ekki um ykkur en það er allanvegna farið að læðast í mann jólaskapið. Enda varla hægt að komast hjá því þegar maður situr í fyrirlestra sal með 190 manns og allir eru að borða mandarínur .... ekkert jólalegra en mandarínu lykt ummmm. Sara er búin að búa til aðventukrans úr trölladegi og svo ætlum við að kaupa okkur jólaseríu og setja út á svalir ... þetta verður æðislegt það meiri segja snjóaði í morgun ... snjórinn var reyndar farinn þegar við svo fórum út að hjóla í skólann en það skiptir engu ég sá hann og það var nóg. Við skelltum okkur allar á fyrsta ári á galafest núna 17 nóv, þetta var semsagt bara fyrir dýralæknanema og allir mættu í sínu fínasta þá meina ég strákar í jakkafötum og stelpur í síðkjólum!!!!! það var algjör snilld það var dansað alveg til 3 um nóttina og síðan var maður alveg að drepast úr harðsperrum daginn eftir hehe.
En núna styttist í að maður fari að koma heim vá hvað ég hlakka til.... Það er alltaf svona maður kann ekki að meta landið sitt nægilega vel fyrr en maður flytur og þá gerir maður ekki annað en að hrósa því enda er ég svo stolt af því að vera íslensk og það er líka töff dönum finnst Ísland voðalega heillandi.
»
14.11.2007 17:59:46 / Ebba
Jæja.. Langt síðan ég hef bloggað .. ég veit.. afsakið mig ... en það er búið að vera brjálað að gera fór í mínu fyrstu próf í háskóla og þurfti að læra heldur mikið fyrir þau.. Þetta var strembinn timi en ég vona að það hafi borgað sig fáum að vita úr prófunum eftir held ég 2 vikur.. En ég fékk að vita strax að ég náði munnlega prófinu í Vet vid.. sem er fag um siðfræðina á bak við dýralækningar... Já ég fór i munnlegt próf hehe gekk mjög vel í því... Reyndar spurðu þær mig hvort ég vildi taka prófið á ensku og þar sem námsefnið var á ensku þá vildi ég það .. enda get ég reddað mér miklu betur úr einhverju rugli á ensku heldur en dönsku... Þetta gerði það að verkum að ég var ekki stressuð og bara fór á e-h flug talandi um dýrarétt og plúsana og mínusana við kemotherapy hjá gæludýrum.. ( það var spurningin sem ég dró) . En að ég hafi tekið prófið á ensku þýðir ekki að ég er ekki öll að koma til í dönskuni, ég er farin að skilja meiri hlutan af fyrirlestrunum og farin að geta talað við danana.. Þetta er allt að koma. Við erum semsagt byrjuð í anatomi núna og verðum í því næsta árið, einnig vorum við að byrja í frumulíffræði og þar kom kennarinn mér sko sannarlega á óvart. Við erum semsagt með 3 kennara í þessu fagi (einn sér um verklega timana) allt svíar held ég og einn talar dönsku með mjög sænskum hreim og hinn kennir á ENSKU ég trúði ekki mínum eigin eyrum þegar hann sagðist ætla að kenna á ensku... Þetta er algjör snilld... Skil allt hehe ... Hann kenndi víst á sænsku í fyrra og það var 30 % fall þ.v var ákveðið að hann skildi reyna þetta á ensku því hann er ekki enn nógu öruggur að kenna á dönsku. Ég tók í hendinna á manninum eftir fyrsta fyrirlesturinn og þakkaði honum fyrir ... Hann var mjög sáttur

Semsagt skólinn er farin að leggjast mun betur í mig og ég lít núna bara á hann sem seinustu hindrunina í því að ná að vera það sem ég hef ætlað mér síðan ég man eftir mér.. GO EBBA!!!! hehe jei
»
12.10.2007 09:17:40 / Ebba
Jæja verð að segja frá reynslu sem ég lenti í í morgun.. Ég var að hjóla á hjólastíg og bara minding my own buissness þegar ég lít til hliðar og það er bíl að keyra á mig ... já hann var að fara að keyra á mig á hjólastíg og við bæði snarbremsuðum og ég fékk bara smá sjok og var að jafna mig þegar helvítis fíflið fer að skamma mig og blóta á fullu... ég bara kallaði hann asna á íslensku og gaf honum svo puttann!!! og hjólaði í burtu.. Ég meina COME ON ég var í 100% rétti hann var að beygja af aðalgötu inn á hjólastíg og var ekkert að pæla í því sem hann var að gera og það versta við þetta er hefði hann keyrt á mig þá hefði ég hugsanlega slasað mig mikið og ekkert komið fyrir hann.. Þannig að fyrri hluti þessara blogs er hatursblogg í garð dana!!!
En núna vil ég beina athygli minni að öðru Mamma mín og besta frænka í öllum heiminum hún Imba eru að koma til mín á eftir .. Það verður best að fá þær og yfir þessa helgi verður lítið kíkt i skólabækur en öll mín orka mun fara í það að dekra við þær þannig ég get ekki beðið.. IMBA ég elska þig
»
10.10.2007 10:26:52 / Ebba
Já það er alveg ótrúlegt hvað tímaum líður. Við erum nýbúnar að koma okkur fyrir hérna úti og farnar að skilja skólann þá eru bara prófin rétt handan við hornið.. Jebb við erum að fara í próf núna í byrjun nóvember. Hef ekki haft tíma til að stressa mig á því enþá en það hlýtur að koma, við förum í 3 próf biofysik zoology og vet vid. Þetta leggst samt alveg ágættlega í okkur sérstaklega eftir að ég og Stína fengum hæðstu einkunn fyrir efnafræðiskýrslu (mjög montnar). Við erum að sjálfsögðu að fara að koma heim um jólin og getum ekki beðið eftir að sjá alla, og það verður gaman að sjá nýja spítala

og auðvita sækja Kobba minn. Þarf einmitt að senda hann í sprautu og svona áður en ég kem heim.. vá fínt að gleyma því ekki...En já mamma mín er að fara að koma í heimsókn til okkar núna og verður alveg í viku það verður svo gaman að hafa hana og fá aftur heimatilbúinn mömmu mat
»
27.09.2007 08:34:50 / Ebba
Það er búið að vera alveg brjálað að gera seinustu daga, fór til Englands í brúðkaup um helgina og hitta fjölskylduna sem var alveg æðislegt og það gaf mér gott boost til að halda mér við efnið og sætta mig við að búa í danmörku. Við erum enþá að bíða eftir að fá netið. ÉG hrindgi í þessa netkalla fyrir nokkrum dögum og fékk að vita að við værum á biðlista til að fá netið því að allt fyrir þrálaust net hjá þeim hefði klárast á lagernum... Þeir reyndar lofðu okkur því núna fyrir föstudag en við vitum að við fáum það ekki svona fljótt.. Smá ábending ef einhver ætlar að flytja til danmerkur pantaðu netið svona 6 mán áður en þú flytur þá verður það kannski komið í gang þegar þú flytur. En lífið hér gengur sinn vana gang skólamálinn ganga bara vel tungumálið er að koma hægt og rólega. Ég og Silja erum á dönskunámskeiði reyndar erum við núna með fleiri íslendingum og það var mjög fyndið að fara í tima þar sem alir töluðu dönsku með rosalegum íslenskum hreim, þetta var eins og að vera kominn aftur í grunnskóla nema allir nemendurinr voru vel yfir 30. hehe. en já bið að heilsa ykkur í bili
Vi ses
»
17.09.2007 11:05:11 / Ebba
Þessi helgi var snilld .. Átti afmæli á laugardag og fór með honum Indriða mínum í dýragarðinn og það var alveg æðislegt. Síðan fórum við saman út að borða á alveg æðislega krútlegum stað og fengum mjög góðan mat ætlum pottþétt þangað aftur. Svo komum við heim og þá var Sara búin að baka afmælisköku og gera allt klárt fyrir party. Það var allt svo flott hjá henni Söru og kakan mjög góð. Svo byrjaði partyið...fórum í pictionary og actionary og þeir sem voru þarna eð okkur voru Stína og Brodi, Steini og Ragga og Silja. Það var mikið drukkið og hlegið hehe geðveikt gaman.
Ég er semsagt í skólanum núna búin að redda mér nokkurn veginn í flestum fögum ég er núna í sambandi við gamla kennarinn minn úr MH og hann er að hjálpa mér með Biofysik sem er það sem ég er mest stressuð yfir.
Svo ætla ég á eftir í dýragarðinn og koma mér fyrir og lesa greinar um siðferði..
»
12.09.2007 10:19:41 / Ebba
Jáhá ég og Stína ( ein íslensk pía sem er með mér í dýralækninum) fórum í okkar fyrstu efnafræði tilraun í gær. Ég hef alltaf verið ágættlega góð í þannig tilraunum og var ekkert allt of stressuð fyrir þennan tíma.. En að fá allar leiðbeiningar á dönsku var to much það er alveg glatað að skilja ekki leiðbeiningar í tilraun því að það skiptir svo miklu máli að allt sé blandað rétt og gert rétt. Sem betur fer vorum við settar í hóp þar sem kenarin talaði ensku, taliði ekki dönsku ég var mjög sátt með það þannig að það hjálpaði okkur alveg helling. En oj hvað við erum með einni ´´know it all,, í tíma!!!!!!! Við vorum lengur að þessu heldur en hún og hún var bara með leiðindi við okkur allan tíma og æj við vorum alveg hættar að hlusta á hana undir lokinn. ÉG veit allanvegna það að hún hefði ekki getað rass hefði leiðbeiningar verið á ensku hvað þá á íslensku. Það er nefnilega alveg ótrúlegt hvað margir danir eru alveg glataðir í ensku.. eftir efnafræði í gær þá skelltum ég og Silja (önnur íslensk pía sem er hér) okkur í dönsku tíma og það var alveg æðislegt að skilja loksins kennaran og fá að tala og bara koma sér aðeins á stað við vorum bara 2 þannig að við áttum kennaran, þetta var æðislegt þannig að núna næstu 10 vikurnar verð ég í dönskutíma einu sinni í viku. Ég er bara mjög sátt með það, gefur manni tíma til að aðeins að hætta í þessum reiknisfögum og æfa aðra hluti.
»
Síður:
1 2